Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 171 – 77. mál.



Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða.

Frá sjávarútvegsnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Kristínu Haraldsdóttur frá sjávar­útvegsráðuneyti. Ekki þótti tilefni til að senda frumvarpið til umsagnar.
    Fulltrúi sjávarútvegsráðuneytis lagði áherslu á að gildistöku IV. og V. kafla laga nr. 55/1998 verði frestað í ljósi þess að samningur sérfræðinga EFTA-ríkjanna og framkvæmda­stjórnar Evrópubandalagsins frá nóvember 1996 um að fella inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið samræmdar heilbrigðisreglur um dýr og dýraafurðir var samþykktur í EES-nefndinni 17. júlí sl. með gildistöku 1. janúar 1999. Í IV. og V. kafla laganna er að finna ákvæði til lögfestingar á þeim samningi og er nauðsynlegt að fresta gildistöku þeirra ákvæða til samræmis við gildistökutíma samningsins.
    Nefndin tekur undir röksemdir fulltrúa sjávarútvegsráðuneytis og leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Vilhjálmur Egilsson, Guðmundur Hallvarðsson, Lúðvík Bergvinsson og Stefán Guð­mundsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 20. okt. 1998.



Kristinn H. Gunnarsson,


form., frsm.


Árni R. Árnason.



Hjálmar Árnason.




Svanfríður Jónasdóttir.



Einar K. Guðfinnsson.